Fara í efni

Íslenska lífeyriskerfið í fremstu röð

Ísland tók í þriðja sinn þátt í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer-CFA Institute. Þar var gerður samanburður á milli lífeyriskerfa 47 landa og lendir íslenska lífeyriskerfið í öðru sæti og fær einkunn A, ásamt Hollandi, Danmörku og Ísrael.

Lífeyrisvísitalan metur heildarlífeyriskerfi mismunandi landa út frá þremur meginþáttum; sjálfbærni, nægjanleika og trausti og var Ísland með A einkunn í öllum þremur meginflokkum.

 

Íslenska lífeyriskerfið í fremstu röð | Lífeyrismál.is