Fara í efni

Launaseðlar birtir á Island.is: B og R deildir

Í dag fengu allir lífeyrisþegar í B og R deildum sjóðsins greiddan lífeyri úr nýju kerfi sjóðsins. Fyrri mánuði höfðu lífeyrisþegar R-deildar og lífeyrisþegar Lífeyrissjóðs Neskaupsstaðar fengið greiðslur úr nýju kerfi.

  • Launaseðlar þessara lífeyrisþega birtast með uppfærðu útliti inni á mínum síðum Brúar og island.is, en framvegis verður ekki hægt að nálgast þá í netbanka.
  • Lífeyrisþegar sem fá einnig greiddan lífeyri úr A og eða V deildum sjóðsins munu tímabundið fá tvo launaseðla vegna þessarar innleiðingar.
  • Eftirfarandi réttindasöfn tilheyra B og R deildum sjóðsins
    • Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar
    • Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar
    • Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
    • Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
    • Lífeyrissjóður Neskaupsstaðar
    • Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
    • Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjakaupstaðar
    • Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar"

Sjá fyrri fréttir um málið:

Launaseðlar birtir á Ísland.is: R deild (LsRb)

Launaseðlar birtir á Ísland.is: Lífeyrissjóður Neskaupsstaðar