Fara í efni

Íslenska lífeyriskerfið áfram í fremstu röð

Íslenska lífeyriskerfið er áfram meðal þeirra bestu í heimi samkvæmt alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer og CFA Institute fyrir árið 2026. Ísland er í þriðja sæti af 55 ríkjum og hlaut, líkt og í fyrra, A-einkunn. Aðeins Holland og Danmörk eru ofar á listanum.

Samkvæmt Mercer endurspeglar A-einkunn lífeyriskerfi sem veitir góð lífeyrisréttindi, er sjálfbært til lengri tíma og nýtur trausts meðal sjóðfélaga. Ísland hlaut A-einkunn í öllum þremur matsþáttum vísitölunnar; nægjanleika, sjálfbærni og trausti.

Niðurstöðurnar staðfesta enn á ný sterka stöðu íslenska lífeyriskerfisins í alþjóðlegum samanburði og getu þess til að veita sjóðfélögum trygg réttindi til framtíðar.

Mercer CFA Institute Global Pension Index 2026