Fara í efni

Móttaka sjóðanna lokar frá og með 17. janúar.

Móttaka Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður lokuð frá og með mánudeginum 17. janúar vegna COVID-19. Starfsfólk sjóðsins mun áfram sinna sínum verkefnum og þjónustu við sjóðfélaga en gera má ráð fyrir einhverri skerðingu á þjónustu og afgreiðsla mála taki lengri tíma.

Á heimasíðu sjóðsins  er hægt að bóka símtal eða fjarfund hjá lífeyrisfulltrúa eða lánafulltrúa. Á Mínum síðum má finna allar lífeyris- og lánaumsóknir.  Hægt er að skila gögnum til sjóðsins í póstkassa sem staðsettur er í anddyrinu á 1. hæð.  Þá er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lifeyri@lifbru.isog lanamal@lifbru.is

Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00 til 16:00 í síma 540-0700