Brú lífeyrissjóður, Íslenski lífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóður bankamanna hafa tekið upp hugbúnaðinn Everen Actuarial Suite til að fylgjast með lífeyrisskuldbindingum sínum í rauntíma. Hugbúnaðurinn geti reiknað út skuldbindingar sjóðanna á nokkrum mínútum, en sambærilegir útreikningar hafi áður getað tekið vikur eða mánuði.
Að baki Everen standa Helgi Bjarnason, tryggingastærðfræðingur og fyrrverandi forstjóri VÍS, og Margrét Vilborg Bjarnadóttir, prófessor við University of Maryland og stofnandi jafnlaunahugbúnaðarins PayAnalytics.
Myndatexti: Frá vinstri: Ólafur Páll Gunnarsson, framkvæmdastjóri Íslenska lífeyrissjóðsins, Margrét V. Bjarnadóttir og Helgi Bjarnason frá Everen, Gerður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Brúar lífeyrissjóðs og Tryggvi Tryggvason, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bankamanna.