Fara í efni

Sumarstörf hjá Brú

Brú auglýsir eftir sumarstörfum. Störfin henta vel námsfólki.

Sumarstarf fyrir háskólanema - fjármálasvið: Um er að ræða afleysingar á fjármálasviði þar sem unnið er með verðbréfagögn og virkri þátttöku í umbótaverkefnum. Starfið er fjölbreytt og lærdómsríkt og gefur möguleika á áframhaldi sem hlutastarf samhliða námi í vetur.

Sumarstarf fyrir háskólanema - lánadeild: Starfið felst í að aðstoða sjóðfélaga með húsnæðislán, úrvinnslu lánaumsókna, veita upplýsingar um lánamöguleika, skilmála og greiðslukjör og annast almenn samskipti við sjóðfélaga vegna lánamála. Þetta er fjölbreytt og lærdómsríkt sumarstarf þar sem þú færð innsýn í fjármál, þjónustu og faglegt starfsumhverfi, auk þess að byggja upp reynslu sem nýtist langt umfram sumarið.

Sumarstarf fyrir háskólanema - réttindasvið: Lífeyrisfulltrúi á réttindasviði sinnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við sjóðfélaga. Í sumarstarfi færð þú aðkomu að vinnslu lífeyrisréttinda, upplýsingagjöf og almennri þjónustu, auk þess sem þú kynnist starfsemi lífeyrissjóðs og regluverki lífeyrismála. Starfið hentar vel námsfólki sem hefur áhuga á fjármálum, réttindum, stjórnsýslu eða þjónustu og vill öðlast verðmæta starfsreynslu í skipulögðu og faglegu umhverfi.