Fara í efni

Truflun á kerfi Microsoft Outlook og Teams

Truflun er nú í kerfum hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft og hefur hún áhrif á ýmsa þjónustu okkar.  Meðal þeirra kerfa sem truflunin hefur áhrif á eru Outlook-póstforritið og Teams, sem kunna því að vera tímabundið óaðgengileg eða virka með takmörkuðum hætti.

Samkvæmt upplýsingum frá Microsoft er unnið að því að greina og leysa vandann. Við biðjum notendur að sýna biðlund á meðan unnið er að því að koma þjónustunni aftur í eðlilegt horf.