Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum frá og með 1. september 2021. Breytingin á vöxtunum nær einnig til útgefinna lána en samkvæmt lögum þarf að tilkynna vaxtabreytingu með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Verðtryggðir breytilegir vextir verða 1,6%, óverðtryggðir breytilegir vextir 3,8%, vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 4,8% og óverðtryggðir fastir vextir 4,7%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.