Fara í efni

Vextir sjóðfélagalána lækka enn og aftur

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að lækka vexti frá og með 16. júní 2020. Breytingin á vöxtunum nær einnig til útgefinna lána en samkvæmt lögum þarf að tilkynna vaxtabreytingu með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Verðtryggðir breytilegir vextir eru nú 1,8%, óverðtryggðir breytilegir vextir 3,7% vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum verða 4,7%. og óverðtryggðir fastir vextir 4,7%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.

Vaxtakjör þeirra lána sem eru í vinnslu hjá sjóðnum taka mið af lægri vöxtunum.