Fara í efni

Villuprófun skilagreina nú innleidd í launakerfi WISE BC

Launakerfi WISE, BC, hefur nú tekið í notkun villuprófun fyrir iðgjaldaskil.

Sjóðurinn hefur á síðustu mánuðum unnið að sjálfvirkni við bókun iðgjalda. Markmiðið er að í framtíðinni verði samskipti við launagreiðendur alfarið stafræn þegar kemur að iðgjaldaskilum.

Stórum áfanga í stafrænni vegferð sjóðsins hefur nú verið náð þar sem villuprófun hefur verið virkjuð þannig að launagreiðendur fá villuboð ef skilagreinar eru ekki réttar. Mikilvægt er að launagreiðendur leiðrétti iðgjaldaskilin eins fljótt sem kostur er í sínu launakerfi og sendi aftur til sjóðsins.

Þess má geta að launakerfin Kjarni og H3-laun hafa innleitt þessa virkni í sín kerfi.

Markmiðið með þessari virkni er að tryggja öryggi og nákvæmni iðgjaldaskila sem leiðir til meiri skilvirkni bæði hjá launagreiðendum og sjóðnum.

 

Sjá fyrri umfjöllun:

Villuprófun skilagreina í A deild

Ný vefþjónusta og villuprófun skilagreina