Fara í efni

Vilt þú hjálpa okkur að gera lífeyris- og lánamál skýrari og aðgengilegri?

Hjá Brú lífeyrissjóði vinnum við á hverjum degi að því að veita sjóðfélögum skýrar upplýsingar, góða þjónustu og stuðning við mikilvægar ákvarðanir um framtíð þeirra. Nú leitum við að öflugum samskiptastjóra sem vill taka þátt í þeirri vegferð með okkur.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fólki, góðum samskiptum og skýrri miðlun. Einstaklingi sem nýtur þess að útskýra flókin málefni á einfaldan og aðgengilegan hátt og vill hafa áhrif á hvernig sjóðurinn miðlar upplýsingum til sjóðfélaga og annarra haghafa. Sem samskiptastjóri tekur þú þátt í að þróa fræðslu, upplýsingagjöf og stafræna miðlun sjóðsins.

Hjá Brú færð þú tækifæri til að starfa með öflugu samstarfsfólki og taka þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á upplifun og þekkingu þúsunda sjóðfélaga.

Ef þú vilt taka þátt í að efla samskipti, fræðslu og upplýsingagjöf hjá Brú hvetjum við þig til að kynna þér starfið nánar og sækja um.

Nánari upplýsingar um starfið og umsóknarfrest má finna hjá Intellecta  hér.