Við hjá Brú lífeyrissjóði erum við á spennandi vegferð. Við erum að þróa starfsemi okkar, efla þjónustu við sjóðfélaga og byggja upp öflugt starfsumhverfji þar sem fagmennska, samvinna og metnaður fara saman.
Við leitum nú að sviðsstjóra þjónustusviðs sem vill leiða áfram þróun þjónustu sjóðsins og hafa áhrif á hvernig við mætum þörfum sjóðfélaga í framtíðinni.
Starfið felur í sér að leiða öflugt teymi, efla þjónustu og þjónustuupplifun sjóðfélaga og taka þátt í áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu og upplýsingagjafar.
Hjá Brú færð þú tækifæri til að starfa með samhentu og metnaðarfullu samstarfsfólki og taka þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á þjónustu við þúsundir sjóðfélaga um allt land.
Ef þú hefur áhuga á að leiða metnaðarfullt starf og taka þátt í áframhaldandi þróun Brúar hvetjum við þig til að kynna þér starfið nánar og sækja um
Nánari upplýsingar um starfið og umsóknarfrest má finna hjá Intellecta hér